top of page
Search
  • Laufey

Bréf frá guði

Ég verð að setjast niður og skrifa til að minna þig á nokkuð  sem er mjög mikilvægt fyrir mig.  Ég elska þig. Ég sá þig í gær á tali við vini þína og mig langaði til að tala   við þig líka. Ég beið allan daginn en þú hafðir aldrei samband.  Ég vonaðist til að við gætum fundið tíma til að tala um kvöldið  en ég veit að þú hafðir margt annað að hugsa um. Þegar líða  tók á daginn þinn sendi ég svalan andvara til að þú yrðir  endurnærður eftir langan dag. Ég lét sérstakan ilm í loftið  frá blómunum við heimreiðina en ég held að þú hafi ekki   tekið eftir því þegar þú hraðaðir þér fram hjá. Mér þykir  leitt að þú þurfir alltaf að flýta þér svona mikið.   Ég fylgdist með þér sofna í gærkvöldi og mig langaði til  að snerta andlit þitt eða strjúka hárið svo ég sendi örlítið  tungsljós á andlit þitt og koddann. Þegar þú vaknaðir í  morgun vonaði ég að við gætum átt örlítinn tíma saman  svo mig langaði til að flýta mér niður og tala við þig en ég  hugsa að þú hafir verið of seinn í vinnuna.  Tár mín voru í regninu. Ég á svo margar gjafir handa þér, svo mikið að segja þér,   svo margt dásamlegt fyrir þig að upplifa því ég elska þig svo  mikið. Þannig er eðli mitt eins og þú veist. Gerðu það talaðu  við mig, biddu mig um hjálp. Ég þekki dýpstu þrár hjarta þíns  og mig langar svo til að vera náinn þér. Ást mín til þín er dýpri  en úthöfin, stærri en þú gætir ýmindað þér. Ég þrái að við   eyðum tíma saman, aðeins við.  Það særir mig að sjá þig svo  leiðan í dag. Ég skil í raun hvernig það er þegar vinir bregðast.  Ég veit að hjarta þitt verkjar.   Ég ætla að hætta núna því ég veit að þú átt mjög annríkt og  ég vil sannarlega ekki áreita þig . Þér er frjálst að kjósa mig  "á minn hátt" eða ekki , - það er þín ákvörðun. Ég hef þegar  valið þig. Elsku vertu ekki of lengi að velja og mundu að   Ég elska þig. VINUR ÞINN GUÐ....




155 views0 comments

Recent Posts

See All

Yorumlar


bottom of page